onsdag den 1. juli 2015

Ældste islænding 1906 - 2015

http://www.visir.is/gudridur-gudbrandsdottir-fallin-fra/article/2015150629345

Guðríður Guðbrandsdóttir fallin frá


15:38 25. JÚNÍ 2015
Guðríður á 105 ára afmælisdeginum sínum fyrir fjórum árum.
Guðríður á 105 ára afmælisdeginum sínum fyrir fjórum árum.
Guðríður Guðbrandsdóttir, sem verið hefur elst núlifandi Íslendinga síðan í ágúst 2011, lést í morgun, 109 ára og 33ja daga gömul. 

Aðeins þrjár aðrar konur hafa náð 109 ára aldri. Guðríður hafði verið elsti Íslendingurinn frá því í ágúst 2011 þegar Torfhildur Torfadóttir féll frá.

Guðríður var ein af ellefu systkinum, sú sjötta í röðinni, fædd í Dalasýslunni og ólu hún og eiginmaður hennar upp þrjú börn og á hún á annan tug barnabarna og enn fleiri barnabarnabörn, já og einnig á annan tug barnabarnabarnabarna.

Guðríður flutti þrítug til Reykjavíkur en bjó áður um tíma í Búðardal með eiginmanni sínum sem var skósmiður.
Guðríður á sínum yngri árum.
Guðríður á sínum yngri árum.
Púlsinn var tekinn á Guðríði á afmæli hennar í fyrra en þá sagði hún bestu breytinguna á sínum tíma hafa verið þá að fá rafmagn. Guðríður fæddist árið 1906 á Heimastjórnartímanum þegar ýmsar framfarir urðu.

Til dæmis sendi Hannes Hafstein ráðherra þá fyrsta símskeytið héðan til konungs. Þegar Guðríður var átta ára braust fyrri heimstyrjöldin út. Hún sagðist muna eftir erfiðleikum og að vegna stríðsins áttu hún ekki neina skó þegar hún fermdist eða almennileg föt.

Hún rifjaði líka upp að þegar hún fékk kosningarétt gat hún samt ekki kosið. Þegar hún mætti í fyrsta sinn á kjörstað hafði gleymst að setja hana á kjörskrá og ekkert var úr því bætt.

Í viðtali í fréttatíma Stöðvar 2 fyrir sléttu ári sagði Guðríður best að vera með jákvæðni að leiðarljósi, hvorki drekka áfengi né reykja eða gera nokkuð annað sem væri vont fyrir mann. 

Hún hafi einu sinni ákveðið að byrja að reykja en einhvern veginn hætt við. Guðríður býr í þjónustuíbúð í Furugerði og hefur gert undanfarna fjóra áratugi.

Hér að neðan má sjá þegar Linda Blöndal, fréttakona Stöðvar 2, heilsaði upp á Guðríði í tilefni afmælis hennar í fyrra.

Ingen kommentarer:

Send en kommentar